Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Dóra Ásgeirsdóttir
  • Staður: Sandgerði
  • Atvinna: Hundasnyrtir
  • Um mig: Ég heiti Dóra Ásgeirsdóttir og hef verið í hundunum síðan um 1997. Ég eignaðist minn fyrsta hund, Alex árið 1998 og var hann af tegundinni Cavalier king Charles spaniel. Í dag á ég þrjá hunda af tegundunum Border collie og Enskur cocker spaniel. Ég hef starfað með hundum í nokkur ár. Var á hundasnyrtistofunni í Dugguvogi í tvö sumur, Hundahótelinu á Leirum í 3 ár og fór sem kennelhjálp til Svíþjóðar í 5 mánuði að læra. Starfaði m.a. á Hornstulls hund och Katt senter sem er verslun og hundasnyrtistofa í Stokkhólmi.

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

NÝ SÍÐA

08. janúar 2012 klukkan 03:25

Er komin með Nýja síðu www.hundur.is

Smile 

Dóra Ásgeirsdóttir

Ómissandi

28. september 2011 klukkan 19:39
Er svo ómissandi að ég ætla reyna klóna mig og vera á tvem stöðum. Mest þó á Dýralæknamiðstöðinni í Grafarholti, en þar er ég komin með topp aðstöðu til að snyrta bæði hunda og ketti. :)
Pöntunarsími er 5444544.
Allar fyrirspurnir má senda á hundasnyrtir(hjá)dýrin.is
Dóra Ásgeirsdóttir hundasnyrtir.
Dóra Ásgeirsdóttir

Aftur í Sandgerði

11. ágúst 2011 klukkan 15:05
Jæja, þá er sífelldum bílferðum fram og til baka í höfuðborgina lokið :) Heima er best, svo ég ákvað í morgun að ég ætla aftur að fara snyrta hunda hérna í Sandgerði.

Tímapantanir eru í gamla góða númerinu 867 6053
Dóra Ásgeirsdóttir hundasnyrtir.

Sookie í continental klippingu
Dóra Ásgeirsdóttir

Gamli hundurinn minn

06. júlí 2011 klukkan 22:18
Við hundaeigendur þekkjum flest þá yndislegu tilfinningu að knúsa að okkur hundinn okkar og finna þá skilyrðislausu ást sem hann ber til okkar.

Hundurinn minn treystir því að ég geri allt sem í mínu valdi stendur til að láta honum líða sem best og það er mín skylda að uppfylla það traust! Ég gef hundinum hreyfingu, þjálfun, leik, góðan mat, þann tíma sem ég hef aflögu, þurrt og hlýtt bæli. Hundurinn gefur mér ALLT sitt!
Því miður eru hundar skammlífir. Manni finnst eins og þeir hafi komið inn í líf manns í fyrradag sem smá hvolpaskott þegar þeir eru farnir að láta á sjá vegna elli. Maður vill ekki viðurkenna það að hundurinn sé orðinn of gamall til að taka þátt í öllu við gerðum saman áður.
Gamall hundur getur farið að tapa heyrn og sjón. Það er misjafnt eftir hverjum og einum hveru mikilvægir þættir þetta eru í lífi hundsins. Fyrir hund sem finnst ekkert skemmtilegra en að hlaupa eins og vindurinn er sjónin mjög mikilvægur þáttur til að hlaupa en heyrnin ekki eins. En fyrir hund sem er rólegur að eðlisfari skiptir þetta mögulega ekki jafn miklu máli. Ellinni getur líka fylgt gigt eða annarskonar hrörnun í líkamanum.

Hundurinn á inni hjá okkur hjálp í ellinni. Dýralæknar kunna oft ráð til að gera ellina auðveldari fyrir hundana okkar. Hægt er að fara með hunda í nudd og í þjálfunarsundlaug og margt fleyra. En við verðum líka að átta okkur á því hvenar við erum hætt að gera hundinum greiða og erum í raun bara að fresta verulega erfiðri ákvörðun á kostnað hundsins.
Þegar hundurinn er hættur aðð njóta sín sem sú spræka hamingjusama persóna sem hann var og farinn að finna til verkja verðum við að spyrja okkur hvað sé best fyrir hundinn okkar?

Ég vil meina að það séu forréttindi fyrir dýrin okkar að hægt sé að binda endi á ævi þeirra þegar ekkert er framundan nema meiri hrörnun og loks dauðinn. Skrefin inná dýralæknastofuna fyrir slíka líknunarmeðferð eru þung og erfið, en það er líka hægt að fá dýralækninn til að koma heim til að síðustu stundirnar verði sem bærilegastar fyrir besta vin okkar og okkur sjálf.

En ákvörðunin um að taka líf besta vinar síns þarfnast verulegs hugrekkis af hálfu eigandans og ekki allir sem ná að stíga þessi þungu skref áður en vinurinn kveður sjálfur.

Verum hugrökk fyrir hundana okkar (og önnur gæludýr), þeir eiga það skilið!

Dóra Ásgeirsdóttir

Ekkert Facebook

18. júní 2011 klukkan 16:07

Hvað myndi maður gera við allan tímann sinn ef maður ætti ekki Facebook?
Tjah! Ég veit það ekki, svo ég ákvað bara að láta á það reyna :)

Ég eyddi Facebook aðganginum mínum og ætla að sjá hvað verður úr því. Ef fólki langar til að hafa samband við mig... þá verður það bara að hringja ;) ja, eða spjalla við mig á Skype eða msn...

Farin út að leika mér í sólinni! 

Kveðja, Dóra. 

Dóra Ásgeirsdóttir

Teikningar

19. janúar 2010 klukkan 22:55

Æðislegar tækifærisgjafir!

Teikna myndir af dýrum og börnum eftir ljósmyndum.
Teikningar má finna hér efst til vinstri undir aðalvalmyndinni.

Verð á teikningum er eftirfarandi:

A5= 10.000 eða 13.000 með landslagi

A4= 15.000 eða 20.000 með landslagi

A3= 20.000 eða 26.000 með landslagi

Ef þú hefur áhuga endilega sendu mér línu á mydog8me@gmail.com


Ps. Ef þú átt ekki til nógu góða mynd af dýrinu þínu er ekkert mál að koma með það til mín og ég tek flotta mynd til að teikna eftir*.

*Myndataka kostar 1000 kr aukalega.

Dóra Ásgeirsdóttir

Er hundurinn að fara úr hárum?

18. janúar 2010 klukkan 12:26

Er hundurinn þinn í hárlosi?

Orðinn flæktur, skítugur eða bara allt of loðinn?


Hundinum líður mun betur eftir góða snyrtingu og
heimilismeðlimum líka með minna hárlosi.


Hringdu og pantaðu tíma í snyrtingu.

Síminn er opinn milli klukkan 15:00 - 18:00

867 6053

Dóra Ásgeirsdóttir

Gleðilegt nýtt ár

04. janúar 2010 klukkan 00:06

Gleðilegt nýtt ár!


Opnunartími pöntunarsímans er sem áður alla virka
daga milli klukkan 15:00 & 18:00.

867 6053

Dóra Ásgeirsdóttir

♥ ¸¸.•*¨*•♫♪ Gleðileg jól ♪♫•*¨*•.¸¸♥

24. desember 2009 klukkan 00:58
♥ ¸¸.•*¨*•♫♪ Gleðileg jól ♪♫•*¨*•.¸¸♥
Dóra Ásgeirsdóttir

Nú fer hver að verða síðastur

10. desember 2009 klukkan 13:00

Nú fer hver að verða síðastur að bóka í jólasnyrtinguna

 fyrir hundinn.

Pöntunarsíminn er opinn virka daga milli 15:00 og 18:00 :)


867 6053 & 423 7770
Dóra Ásgeirsdóttir

Stafnesvegur 6 nh. Sandgerði

GLEÐILEG JÓL

Gizmo sæti ofurblendingur

Dóra Ásgeirsdóttir

Leit

Klukkan

Innskráningar kubbur